„Við viljum virkja kraftinn í fólkinu okkar“

Hjá Ari­on starfa hátt í níu hundruð ein­stak­ling­ar, kraft­mik­ill hóp­ur fólks á öll­um aldri og með alls kyns bak­grunn, mennt­un og reynslu. Styrk­ur Ari­on-sam­stæðunn­ar felst í þess­um öfl­uga hópi starfs­fólks sem býður fjöl­breytt­um hópi viðskipta­vina upp á margs kon­ar lausn­ir í bankaþjón­ustu, trygg­ing­um og eign­a­stýr­ingu.

Helga Hall­dórs­dótt­ir, for­stöðumaður mannauðs hjá Ari­on, seg­ir að það sé marg­slungið og krefj­andi verk­efni en líka afar skemmti­legt að halda utan um svo stór­an hóp og bjóða upp á fræðslu við hæfi. Ekki nægi að starfs­fólk þekki ein­ung­is dag­leg verk­efni sín held­ur sé brýnt að það þekki starf­semi Ari­on í heild sinni og sömu­leiðis fjár­má­laum­hverfið á Íslandi.

„Við erum þekk­ing­ar- og lær­dóms­fyr­ir­tæki og því er afar mik­il­vægt að hlúa stöðugt að símennt­un fólks­ins okk­ar en einnig að líðan og heilsu þess,“ seg­ir Helga. Þetta er gert með því að bjóða upp á yf­ir­grips­mikið úr­val af ra­f­rænni fræðslu og staðbundn­um nám­skeiðum, auk þess sem fólk sæki alls kyns fyr­ir­lestra og ráðstefn­ur.

„Við hvetj­um líka til tengslamynd­un­ar, ekki ein­ung­is gagn­vart viðskipta­vin­um okk­ar held­ur einnig inn­an okk­ar raða til að efla tengslanetið hér inn­an­húss,“ seg­ir hún og nefn­ir tvö ný­leg inn­an­húss­verk­efni – Mentor­pró­gramm Ari­on og Útskrift­ar­pró­gramm Ari­on – sem bera þeirri viðleitni skýrt merki.

Helga Halldórsdóttir er forstöðumaður hjá Arion banka.
Helga Hall­dórs­dótt­ir er for­stöðumaður hjá Ari­on banka.

Mentor­pró­grammið færði mig upp á næsta stig

„Í Mentor­pró­gramm­inu feng­um við til liðs við okk­ur tutt­ugu og sex öfl­uga stjórn­end­ur og sér­fræðinga inn­an sam­stæðunn­ar sem öll eiga það sam­eig­in­legt að vera með mikla reynslu á fjár­mála­markaði,“ seg­ir Marí­anna Finn­boga­dótt­ir, verk­efna­stjóri menn­ing­ar og upp­lif­un­ar starfs­fólks hjá Ari­on. „Hvert og eitt þeirra er svo parað sam­an við einn nem­anda, með það fyr­ir aug­um að báðir aðilar hafi gagn og gam­an af sam­band­inu.“ Mentor­pró­grammið virk­ar þvert á deild­ir fyr­ir­tæk­is­ins og leiðir oft sam­an ólík­leg­asta fólk með frjó­um og skemmti­leg­um ár­angri.

Maríanna Finnbogadóttir er verkefnastjóri menningar og upplifunar starfsfólks hjá Arion.
Marí­anna Finn­boga­dótt­ir er verk­efna­stjóri menn­ing­ar og upp­lif­un­ar starfs­fólks hjá Ari­on.

Svan­hild­ur Ásta Haig hef­ur starfað hjá Ari­on banka í níu ár og hef­ur sinnt þar fjöl­breytt­um störf­um í þjón­usturáðgjöf, fyr­ir­tækjaráðgjöf, reglu­vörslu, viðskipta­eft­ir­liti og nú síðast innri end­ur­skoðun. Hún seg­ir að Mentor­pró­grammið hafi veitt henni hug­rekki til að taka næsta skref fram á við í starfi. „Já, ég hafði séð spenn­andi starf í innri end­ur­skoðun aug­lýst en ætlaði ekk­ert að taka stökkið,“ seg­ir Svan­hild­ur. „Svo komst ég inn í Mentor­pró­grammið og „mentor­inn“ minn veitti mér kjarkinn sem ég þurfti til að sækja um. Í svona stóru fyr­ir­tæki get­ur fólk unnið árum sam­an án þess að kynn­ast öll­um. Þess vegna er svo frá­bært og nauðsyn­legt að vinnustaður­inn standi fyr­ir alls kyns verk­efn­um sem hafa tengslamynd­un starfs­fólks að leiðarljósi. Að fá „mentor“ er svo­lítið eins og að fara til markþjálfa eða sál­fræðings. Viðkom­andi veit kannski ekk­ert um mig í upp­hafi og því er ég óskrifað blað þegar við erum að kynn­ast. Þetta er frá­bær leið til að stíga út fyr­ir þæg­inda­hring­inn og átta sig á því að mögu­leik­arn­ir eru ótæm­andi. „Mentor­inn“ hafði eng­ar fyr­ir fram mótaðar hug­mynd­ir um hvað ég gæti eða gæti ekki og því voru spurn­ing­arn­ar meira um hvað ég vildi gera, af hverju, og hvernig ég ætlaði að kom­ast þangað.“

Svan­hild­ur bæt­ir því við að Mentor­pró­grammið hafi ekki ein­ung­is nýst henni í starfi held­ur einnig eflt hana per­sónu­lega. „Ég hef fengið aukna trú á sjálfa mig, hvað ég get og mögu­leika mína. Mentor­pró­grammið færði mig upp á næsta stig á starfs­ferl­in­um – og sem mann­eskja.“

Leiðbein­and­inn lær­ir ekki minna en nem­andinn

Guðfinna Helga­dótt­ir, rekstr­ar­stjóri á viðskipta­banka­sviði Ari­on, tók að sér að vera „mentor“ í fyrsta skipti sem Mentor­pró­grammið fór fram og hlakk­ar til að end­ur­taka leik­inn.

„Það var mjög gef­andi reynsla að vera slík­ur leiðbein­andi,“ seg­ir Guðfinna. „Nem­andinn minn sagði mér til dæm­is hvers vegna hann hefði valið mig sem „mentor“ og fannst mér það mjög áhuga­vert því ég hafði aldrei gefið þeim eig­in­leik­um sem drógu viðkom­andi að mér gaum. Eins fannst mér æðis­legt að sjá nem­anda minn vaxa og kom­ast á næsta stað á starfs­ferl­in­um.“

Guðfinna hef­ur starfað í bank­an­um frá ár­inu 2010 en inn­an fjár­mála­geir­ans í um tutt­ugu og fimm ár. Á þeim tíma hef­ur hún feng­ist við fjöl­breytt verk­efni. Hún hef­ur sinnt bakvinnslu, þjón­ustu í fram­línu, markaðsmá­l­um og eign­a­stýr­ingu, séð um lána­nefnd­ir og sinnt stefnu­mót­un og þróun. Reynsla henn­ar er því víðtæk og fagn­ar hún því að geta deilt reynslu sinni og hjálpað sam­starfs­fé­lög­um að blómstra.

„Marg­ir eru leit­andi og vilja vaxa, bæði í starfi en líka bara sem mann­eskj­ur. „Mentor­inn“ get­ur veitt viðkom­andi kjark til að taka ný skref á ferl­in­um. Það er svo gott að spegla sig í ein­hverj­um sem er ekki yf­ir­maður þinn eða ná­inn sam­starfsmaður dags dag­lega og hef­ur þar með ekki sterk­ar fyr­ir fram mótaðar hug­mynd­ir um þig.“

Guðfinna seg­ir enn frem­ur að það séu mik­il for­rétt­indi, og í raun fjár­sjóður, að hafa aðgang að þeim stóra hópi sér­fræðinga sem starfi inn­an bank­ans. „Verk­efn­in eru svo ólík og fólkið svo fjöl­breytt að það er alltaf eitt­hvað nýtt að ger­ast. Ég hef verið hér í fjór­tán ár og þau hafa flogið hjá!“

Útskriftar­pró­gramm að er­lendri fyr­ir­mynd

Ný­lega ýtti Ari­on úr vör öðru til­rauna­verk­efni inn­an bank­ans. Átján mánaða út­skriftar­pró­grammi fyr­ir ein­stak­linga sem hafa lokið eða eru um það bil að ljúka há­skóla­námi með framúrsk­ar­andi ár­angri. Þar gefst litl­um hópi ungra ein­stak­linga tæki­færi til að kynn­ast fjöl­breytt­um störf­um Ari­on og spreyta sig á alls kyns ólík­um verk­efn­um.

„Það kom inn því­líkt magn af um­sókn­um, sem bend­ir til þess að það sé mik­il eft­ir­spurn eft­ir slíku verk­efni á ís­lensk­um vinnu­markaði,“ seg­ir Marí­anna. „Að velja sjö nöfn úr bunk­an­um var ekki auðvelt.“

Útskrift­ar­verk­efni Ari­on er sniðið að er­lendri fyr­ir­mynd, en marg­ir af stærstu bönk­um í Evr­ópu bjóða upp á slíka náms­braut fyr­ir nýtt starfs­fólk. Náms­braut­in er þannig upp­byggð að þátt­tak­end­ur fær­ast á milli sviða eða fyr­ir­tækja Ari­on-sam­stæðunn­ar á nokk­urra mánaða milli­bili og öðlast þar með yf­ir­grips­mikla þekk­ingu og reynslu á fjöl­breytt­um verk­efn­um. Reynt er að velja inn fjöl­breytt­an hóp starfs­fólks með ólík­an bak­grunn og mennt­un. „Í út­skriftar­pró­gramm­inu erum við fyrst og fremst að leita eft­ir ein­stak­lega metnaðarfullu fólki, sem er reiðubúið að tak­ast á við alls kon­ar spenn­andi áskor­an­ir og læra mikið á stutt­um tíma. Þá skipt­ir ekki máli hvort fólk hef­ur bak­grunn í viðskipta­fræði, hjúkr­un eða jarðfræði,“ seg­ir Björn Björns­son, fram­kvæmda­stjóri upp­lýs­inga­tækni­sviðs Ari­on banka, en hann hef­ur, rétt eins og aðrir stjórn­end­ur inn­an sam­stæðunn­ar, tekið þess­ari nýju náms­braut fagn­andi.

Björn Björnsson er framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka.
Björn Björns­son er fram­kvæmda­stjóri upp­lýs­inga­tækni­sviðs Ari­on banka.

Bald­vin Bjarki Gunn­ars­son er einn þeirra sem voru val­in inn í verk­efnið. Hann hóf störf hjá Ari­on sum­arið 2022 í viðskiptaum­sjón og var svo í hluta­starfi þar til hann lauk námi í verk­fræði síðasta vor. Bald­vin ákvað að láta slag standa þegar út­skriftar­pró­grammið var aug­lýst og var einn þeirra sem komust inn. Hann hóf leik í grein­ingu inn­an Stefn­is, sjóðastýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu sem er hluti af Ari­on-sam­stæðunni, og starfar eins og sak­ir standa í áhættu­stýr­ingu Ari­on banka. Næst fer hann í fjár­stýr­ingu bank­ans og svo lýk­ur verk­efn­inu hjá hon­um í grein­ing­ar­deild­inni. Þá mun hann hafa öðlast víðtæka reynslu af störf­um inn­an Ari­on á stutt­um tíma.

„Ég sé að margt af því fólki sem maður lít­ur upp til hér í bank­an­um hef­ur mjög fjöl­breytt­an bak­grunn og reynslu,“ seg­ir Bald­vin. „Því er frá­bært að fá að kynn­ast ólík­um sviðum og störf­um og sömu­leiðis alls kyns ólíku fólki.“

Guðfinna Helgadóttir, Svanhildur Ásta Haig og Baldvin Bjarki Gunnarsson.
Guðfinna Helga­dótt­ir, Svan­hild­ur Ásta Haig og Bald­vin Bjarki Gunn­ars­son.

Marí­anna úr mannauðsdeild Ari­on seg­ir bæði verk­efn­in kom­in til að vera, enda sam­rým­ist þau vel menn­ing­unni sem leit­ast er við að byggja upp inn­an fyr­ir­tæk­is­ins. „Við vilj­um leyfa öll­um að blómstra og virkja kraft­inn í fólk­inu okk­ar,“ seg­ir hún.

mbl.is