Bandarísku söngkonurnar Beyoncé Knowles og Kelly Rowland létu sig ekki vanta á frumsýningu Broadway-söngleiksins Death Becomes Her í New York-borg nú á dögunum.
Stöllurnar mættu til að styðja góðvinkonu sína og fyrrverandi hljómsveitarfélaga, Michelle Williams, sem fer með eitt aðalhlutverkanna í sýningunni.
Knowles deildi færslu frá frumsýningarkvöldinu á Instagram-síðu sinni og birti meðal annars mynd af tríóinu baksviðs.
„Systur að eilífu," skrifaði poppstjarnan meðal annars við færsluna sem hátt í 900.000 manns hafa líkað.
Knowles, Rowland og Williams mynduðu poppsveitina Destiny’s Child, sem er ein vinsælasta kvennasveit sögunnar.
Sveitin, þekkt fyrir slagara á borð við Bills, Bills, Bills, Say My Name og Bootylicious, lagði upp laupana árið 2006 en hefur þó komið saman nokkrum sinnum síðan, þar á meðal í hálfleik Ofurskálarinnar árið 2013.