Guðni Th. Jóhannesson, fráfarandi forseti Íslands, átti fund með Margréti Þórhildi fyrrverandi drottningu og þjóðhöfðingja konungdæmisins Danmerkur fyrr í dag. Fundurinn fór fram í Fredensborgarhöll á Sjálandi.

Margrét Þórhildur, sem afsalaði sér dönsku krúnunni eftir 52 ár á valdastóli í byrjun þessa árs, tók á móti forsetanum í tilefni þess að hann lætur brátt af embætti en landsmenn kjósa sér nýjan forseta þann 1. júní næstkomandi.
Á fundinum ræddu þau meðal annars um opinbera heimsókn forsetahjónanna til Danmerkur í janúar 2017 og þakkaði Guðni þær hlýju móttökur sem þau nutu þá. Margrét Þórhildur minntist einnig heimsóknar sinnar til Íslands á aldarafmæli fullveldis í desember 2018.
Þá var einnig rætt um samband Íslands og Danmerkur, framtíð norrænnar samvinnu og mikilvægi tungumála í menningu þjóða. Loks bar forseti fram heillaóskir og hlýjar kveðjur til Friðriks konungs og Mary drottningar.