Orri Páll Jóhannsson, þinglokksformaður Vinstri grænna, segir Vinstri-græn vilja verja almannaþjónustu gagnvart aðhaldi eins og gert er í þeim fjárlögum sem þingmenn eru þvert á alla flokka að fást við í þinginu.

Orri Páll skipar annað sæti á lista Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmi suður. Á næstu dögum birtast á mbl.is viðtöl við alla oddvita framboða í öllum kjördæmum landsins. Sú undantekning er þó gerð að þegar formaður flokks leiðir listann er næsti maður á lista tekinn tali. Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, er oddviti í Reykjavík suður.
Til þess að geta staðið undir öflugri almannaþjónustu segir Orri Páll tekjuöflun nauðsynlega svo hægt sé að nota tilfærslukerfin til að styðja, á breiðum grundvelli, við fólk. Nefnir hann sérstaklega þau efnaminni í því sambandi.
Orri Páll lýsir flokknum, sem hefur tapað miklu fylgi, sem stjórnmálaafli, alltaf staðsettu til vinstri, sem hafi lagt áherslu á frið, kvenfrelsi, umhverfis- og náttúruvernd og félagslegan jöfnuð. Hann áttar sig á að það er á brattann að sækja en segist eiga eftir að sjá það gerast að flokknum verði hafnað.
„Við þurfum að sýna fram á hvers slags erindi við eigum og við erum aldeilis byrjuð á því.“