Þórður mun ekki taka þingsæti

Alþingiskosningar 2024 | 16. nóvember 2024

Þórður mun ekki taka þingsæti

Þórður Snær Júlíusson, fjölmiðlamaður og frambjóðandi Samfylkingarinnar, hyggst ekki taka sæti á þingi, jafnvel ef hann hljóti slíkt í komandi kosningum. Heldur hyggst hann eftirláta næstu konu á listanum sæti sitt.

Þórður mun ekki taka þingsæti

Alþingiskosningar 2024 | 16. nóvember 2024

Gömul graðhestaskrif Þórðar hafa vakið athygli að undanförnu.
Gömul graðhestaskrif Þórðar hafa vakið athygli að undanförnu. mbl.is/María Matthíasdóttir

Þórður Snær Júlíusson, fjölmiðlamaður og frambjóðandi Samfylkingarinnar, hyggst ekki taka sæti á þingi, jafnvel ef hann hljóti slíkt í komandi kosningum. Heldur hyggst hann eftirláta næstu konu á listanum sæti sitt.

Þórður Snær Júlíusson, fjölmiðlamaður og frambjóðandi Samfylkingarinnar, hyggst ekki taka sæti á þingi, jafnvel ef hann hljóti slíkt í komandi kosningum. Heldur hyggst hann eftirláta næstu konu á listanum sæti sitt.

Göm­ul skrif Þórðar Snæs á blogg­inu „Þess­ar elsk­ur“, sem haldið var uppi af hon­um og fé­lögum á ár­un­um 2004-2007, voru dreg­in fram í þætti Spurs­mála á mbl.is á þriðju­dag. Skrifin hafa síðan þá vakið sterk viðbrögð en hann gerði konur gjarnan að umfjöllunarefni á blogginu sínu, oft á niðrandi hátt. 

„Ég mun ekki taka þingsæti hljóti ég slíkt í kosningunum eftir tvær vikur heldur eftirláta næstu konu á listanum sæti mitt,“ skrifar hann á Facebook.

Þórður skipar þriðja sæti lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður en fjórða sætið skipar Dagbjört Hákonardóttir þingmaður.

Skammast sín djúpt

Kristrún Frosta­dótt­ir, formaður flokks­ins, sagði í færslu á Face­book á miðviku­dag að skrif Þórðar end­ur­spegluðu eng­an veg­inn stefnu flokks­ins en að hún teldi rétt að gefa fólki tæki­færi að bæta sitt ráð.

Fjölmiðlamaðurinn eyddi bloggsíðunni af internetinu fyrir um 17 árum vegna þess að „ég var þá þegar búinn að átta mig á að skrifin þar voru ekki sniðug og ögrandi heldur vond, meiðandi og skaðleg og ættu ekki að rata fyrir augu neins framar,“ skrifar Þórður.

En skjáskot af síðunni lifa enn í vefsöfnum. „Ég vissi það ekki og þess vegna kom það mér jafn mikið í opna skjöldu og raun bar vitni þegar ég var spurður út í þau í Spursmálum. Það breytir þó engu um ábyrgð mína á skrifunum. Hún er, líkt og áður sagði, algjör.“

Hafi lært af konum í kvennréttindabaráttunni

Í færslunni segist hann skammast sín djúpt fyrir skrifin, sem hann kalllar röng, meiðandi og skaðleg. Hann biður bið alla sem hafa orðið fyrir áhrifum af skrifunum – „og bara alla yfir höfuð“ – afsökunar á því að hafa skrifað með þessum hætti.

„Ég geri mér með öllu grein fyrir því að svona skrif og svona sjónarmið hafa valdið miklum skaða í fortíð, nútíð og framtíð og að þau skipti máli í að kvenfjandsamleg menning hefur þrifist,“ segir hann og bendir á að skrifin séu hluti af stærra vandamáli.

„Fyrri afsökunarbeiðni mín og ábyrgðartaka átti ekki að vera sett fram með léttúð. Hún, líkt og þessi, er einlæg og án fyrirvara.“

Margir ungir menn á sama stað í dag

Hann segir viðhorf sín hafa gjörbreyst og helsta ástæða þess sé sú að hann hafi heyrt konurnar sem leiddu baráttuna fyrir auknu kvenfrelsi lýsa reynsluheimi sínum.

„Ég heyrði konurnar í kringum mig lýsa óttanum sem þær þurfa að lifa með en ég, í forréttindastöðu, þarf aldrei að takast á við. Ég lærði af öllum sterku konunum sem ég hef unnið með í gegnum árin. Barátta þeirra allra breytti ekki bara viðhorfum mínum, heldur endurskilgreindu viðmið samfélagsins. Ollu byltingu.“

„Það liggur líka fyrir að baráttan stendur enn. Og það er bakslag í henni. Viðhorf eru farin að heyrast á ný sem voru á undanhaldi. Ungir karlar sem eru á svipuðum stað og ég var á þessum tíma sem skrifin birtust. Það er mjög vond þróun sem þarf að spyrna gegn. Það þarf að berjast fyrir því sem hefur áunnist í kvenfrelsis- og jafnréttisbaráttunni. Ég hef tekið þátt í þeirri baráttu á síðustu áratugum og ég vil gera það áfram sem stuðningsmaður. Með því að hlusta og læra.“

Getur ekki bætt skaðann

Þórður segir það þungt að vera af mörgum fyrst og síðast dæmdur af því sem hann gerði fyrir tæpum tveimur áratugum.

„Ég hef helgað mig því að vinna samfélaginu gagn og veita valdhöfum aðhald allan minn starfsferil og flest mín fullorðinsár. Þar með talið í jafnréttismálum og þeim byltingum sem orðið hafa í afstöðu til kvenna og femínisma.“

Þórður segir að það ætti að vera öllum sem þekkja til ljóst að það er ekkert eftir af þessum manni sem skrifaði þessi orð undir dulnefninu „German steel“.

„Ég get ekki bætt skaðann sem skrifin ollu, og valda, en ég gat breyst og þroskast og orðið að betri og gagnlegri manni.“

Áframhaldandi vera Þórðar á lista reynst mörgum þung

Ég boðið sig fram til Alþingis til að gera samfélaginu gagn á öðrum vettvangi, hvíla sig á því að benda á það sem væri að og reyna að vinna að lausnum þess í stað.

„Nú er mér ljóst að áframhaldandi vera mín á lista er til trafala og er mörgum þung. Þess vegna tilkynni ég hér með að ég mun ekki taka þingsæti hljóti ég slíkt í kosningunum eftir tvær vikur heldur eftirláta næstu konu á listanum sæti mitt.“

Hann óskar Samfylkingunni alls hins besta í komandi baráttu. „Þetta er sannarlega hópur sem á mikið erindi í að bæta samfélagið.“

Fréttin hefur verið uppfærð.

 

mbl.is