Kjörsókn í Reykjavík er örlítið meiri nú en á sama tíma í síðustu alþingiskosningum árið 2021, bæði í Reykjavík norður og suður.

Klukkan 16 höfðu 38 prósent kjósenda á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi norður greitt atkvæði, en á sama tíma í alþingiskosningum árið 2021 höfðu 36,8 prósent nýtt atkvæðarétt sinn.
Í Reykjavíkurkjördæmi suður höfðu 39,6 prósent greitt atkvæði samanborið við 37,7 prósent í kosningum fyrir þremur árum.
Atkvæði greidd utan kjörfundar eru ekki inni í þessum tölum. Talning atkvæða hefst kl. 22 í Laugardalshöll og er öllum opin. Streymt verður frá talningunni á vef Reykjavíkurborgar.