Áslaug gæti sætt sig við 20%

Alþingiskosningar 2024 | 1. desember 2024

Áslaug gæti sætt sig við 20%

„Það hefur verið á brattan að sækja fyrir okkur í Reykjavík, og miðað við mælingar höfum við ekki verið að sjá neitt þessu líkt alla kosningabaráttuna,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi suður, í samtali við mbl.is.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið 18,6% talinna atkvæða í kjördæminu.

„Við höfum fundið fyrir miklum stuðningi, sérstaklega á síðustu dögum, og það er greinilega að skila sér.“

Hún hefur mikla trú á því að Jón Pétur Zimzen, sem skipar 3. sæti Sjálfstæðisflokksins á listanum, komist inn á þing, þar sem útlit er fyrir að hann sé næstur inn.

Auk þess segir hún „alveg ásættanlegt“ ef Sjálfstæðisflokkurinn fái 20% atkvæða.

mbl.is