Íbúum sagt að rýma svæði á suðurhluta Gasa

Ísrael/Palestína | 2. desember 2024

Íbúum sagt að rýma svæði á suðurhluta Gasa

Ísraelski herinn hefur skipað íbúum að rýma ákveðin svæði á suðurhluta Gasastrandarinnar.

Íbúum sagt að rýma svæði á suðurhluta Gasa

Ísrael/Palestína | 2. desember 2024

Ísraelski herinn er byrjaður að beina spjótum sínum að suðurhluta …
Ísraelski herinn er byrjaður að beina spjótum sínum að suðurhluta Gasasvæðisins á ný. AFP

Ísraelski herinn hefur skipað íbúum að rýma ákveðin svæði á suðurhluta Gasastrandarinnar.

Ísraelski herinn hefur skipað íbúum að rýma ákveðin svæði á suðurhluta Gasastrandarinnar.

Er þetta í fyrsta skipti í margar vikur þar sem ísraelski herinn beinir spjótum sínum að suðurhluta strandarinnar en síðan í október hafa átökin verið á norðurhlutanum.

Ættu að færa sig strax yfir á mannúðarsvæði

„Hryðjuverkasamtök eru enn eina ferðina að skjóta eldflaugum á Ísrael frá ykkar svæðum,“ skrifaði talsmaður ísraelska hersins, Avichay Adraee, á X, þar sem hann beindi skilaboðum sínum til íbúa borgarinnar Khan Yunis.

„Fyrir ykkar eigið öryggi þá verðið þið að rýma svæðið strax og færa ykkur til mannúðarsvæðisins.“

Hamas gengist við árásum

Snemma í dag sagði ísraelski herinn í yfirlýsingu að einni eldflaug hefði verið skotið frá Khan Yunis en að tekist hafi að stöðva hana.

Hryðjuverkasamtökin Hamas gengust stuttu síðar við árásinni og sögðust hafa skotið eldflaugum sem beindust að Suður-Ísrael.

mbl.is