Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International var með mannréttindagjörning fyrir utan Alþingishúsið í hádeginu en í dag er alþjóðadagur til minningar um fórnarlömb hópmorðs.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsdeild Amnesty International.
Voru á jörðina lagðir fjórtán líkpokar með vísun í þá sem látist hafa á Gasasvæðinu í stríði Ísraels og Hamas.
Á hvern poka var svo settur útprentaður bókstafur og saman mynduðu þeir setninguna „Þetta er hópmorð.“
Hópurinn tendraði einnig kertaljós til minningar um þá sem látist hafa í átökunum og kemur fram í tilkynningunni að deildir Amnesty International víða um heim voru með gjörning í sama tilgangi í tilefni dagsins.
Þá lásu ungliðar úr ungliðahreyfingu Íslandsdeildarinnar upp brot úr nýútkominni skýrslu Amnesty International þar sem fram kemur að Amnesty telji nægilegan grundvöll til að álykta að Ísrael hafi framið og haldi áfram að fremja hópmorð á Palestínubúum á Gasasvæðinu.
„Þar kom meðal annars fram að 63% allra bygginga á svæðinu hafa verið eyðilagðar og að um 60 % þeirra sem hafa látist eru konur, börn og eldri borgarar.
Samkvæmt skýrslu Amnesty International er ljóst að um ásetning um hópmorð er að ræða þegar horft er á hernaðarlega sókn Ísraels og þær afleiðingar sem stefnur og aðgerðir Ísraels hafa haft í víðu samhengi,“ segir í tilkynningunni.
Segir þar enn fremur að Amnesty kalli eftir því að ríki heims grípi til öflugra og langvarandi aðgerða, sama hversu óþægilegt það kunni að vera fyrir bandamenn Ísraels og einnig að ríki heims beiti öllum löglegum leiðum til að draga gerendur til ábyrgðar.
„Við köllum á leiðtoga þessa heims og ekki síður hér á Íslandi að nota rétt orð yfir það sem á sér stað. Þetta er hópmorð!“