Átta ára drengur lést eftir að hafa verið skotinn í andlitið og höfuðið á sveitabæ í Kumbaralandi í Englandi.
BBC greinir frá því að maður á sjötugsaldri var handtekinn á vettvangi. Atvikið átti sér stað síðdegis í gær.
Drengurinn var fluttur með sjúkraflugi á spítala en lést af sárum sínum í nótt.
Talsmaður lögreglunnar sagði að skotvopn hefði fundist á vettvangi. Málið er nú í rannsókn.