Lögregla óskar eftir vitnum að banaslysinu

Gatnamót Sæbrautar að Skeiðarvog og Kleppsmýrarveg. Mynd úr safni.
Gatnamót Sæbrautar að Skeiðarvog og Kleppsmýrarveg. Mynd úr safni. mbl.is/sisi

Vitni að banaslysinu sem varð í nótt, eða aðdraganda þess, eru beðin um að hafa samband við lögreglu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. 

Banaslys varð er fólksbifreið var ekið norður Sæbraut, á milli Súðarvogs og Kleppsmýrarvegar, og á gangandi vegfaranda sem var á leið yfir götuna til austurs.

Tilkynning um slysið barst tíu mínútum eftir miðnætti og héldu viðbragðsaðilar strax á vettvang, en vegfarandinn var látinn er að var komið.

Framkoma sumra dapurleg

Í tilkynningunni kemur fram að lokað hafi verið fyrir umferð um vettvanginn á meðan unnið var að rannsókn málsins, eins og venjan er þegar svo alvarlegt slys hefur átt sér stað.

Segir að það hafi mætt litlum skilningi annarra vegfaranda.

„Lögreglumenn eru ýmsu vanir í þeim efnum, en framkoma sumra í nótt var dapurleg svo ekki sé meira sagt og er fólk beðið um að taka þetta til sérstakrar umhugsunar.“

Upplýsingum um slysið má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í síma 444 1000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert