Miðflokkurinn vann sigur í kosningunum en hefur þó ekki verið hleypt að borðinu við myndun ríkisstjórnar. Forsvarsmenn flokksins halla sér þó aftur og það á einnig við um formann Sjálfstæðisflokksins.
Á sama tíma velta menn vöngum yfir því hvernig ný ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins verður samsett, ef tekst að koma henni á koppinn.
Í nýjasta þætti Spursmála, sem sýndur var hér á mbl.is fyrr í dag, var sviðsmyndum um það varpað fram. Þar var einnig rætt við þingmennina Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem nú er að búa sig undir að hverfa úr ráðuneyti sínu til síðustu þriggja ára og Karl Gauta Hjaltason sem kemur að nýju inn á þing eftir nokkurra ára fjarveru.
Ræddu þau mögulega stjórnarmyndun og hvort flokkar þeirra, Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur muni eiga aðkomu að slíkum viðræðum áður en yfir lýkur. Verða þau beðin um að spá fyrir um úrslit þeirra mála.
Upptöku af þættinum má nálgast í spilaranum hér að ofan, á Spotify og YouTube og er hún öllum aðgengileg.
Áður en þau Áslaug og Karl Gauti mættu til leiks ræddi Stefán Einar við varaborgarfulltrúana Söndru Hlíf Ocares, sem er í Sjálfstæðisflokki og Stefán Pálsson sem situr fyrir VG í borgarstjórn. Flokkar þeirra beggja urðu fyrir þungu áfalli í kosningunum og óvíst hvernig þeir hyggjast bregðast við.
Þeim til fulltingis við greiningarvinnuna mætti á svæðið Valgeir Magnússon, oft nefndur Valli sport, en hann er í hópi reyndustu auglýsinga- og markaðsmanna landsins.
Fylgstu með Spursmálum alla föstudaga kl. 14 hér á mbl.is.