„Það verða engar breytingar á áformum um Þjóðarhöllina og við munum standa við alla þá samninga sem þar hafa verið gerðir,“ segir Helga Þórðardóttir, borgarfulltrúi og formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur.
Spurningin til Helgu kemur til vegna þess að í samstarfssamningi nýs meirihluta í borginni er hvergi minnst á Þjóðarhöllina og í viðtali á Bylgjunni sl. sunnudag sagði Dóra Björt Guðjónsdóttir að þær væru ekki „algjörlega“ hættar við Þjóðarhöllina.
„Okkur finnst mjög mikilvægt, og við vitum hvernig það hefur verið með þessa ágætu herramenn sem hafa stundum verið í forsvari fyrir borgina, að þeir fara á karlakvöld hjá íþróttafélögunum og það hópast í kringum þá fólk sem er með alls konar kröfur og beiðnir um hvað þurfi að gera. Mér finnst að þessi forgagnsröðun eigi ekki að vera á forsendum frekra karla sem ýta mikið og gera alls konar, heldur sé það á forsendum barna og ungmenna,“ sagði Dóra Björt í viðtalinu.
Helga Þórðardóttir ítrekar að þetta séu samningar sem búið sé að gera og ekki verði hreyft við þeim.
„Við viljum einmitt að þetta verkefni fái framgang fyrir börn og ungmenni í Laugardal og alla Íslendinga.“
Hefur þú engar áhyggjur af því að tíminn sem þið hafið fram að kosningum sé of stuttur?
„Það er margt hægt að gera á 14 mánuðum og það eru spennandi tímar fram undan,“ segir Helga.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag