Efling segir upp samningum

Samninganefnd Eflingar gagnvart Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Samninganefnd Eflingar gagnvart Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Ljósmynd/Efling/Sunna Björg Gunnarsdóttir.

Stéttarfélagið Efling hefur sagt upp kjarasamningum vegna félagsmanna sem vinna á hjúkrunarheimilum. Uppsögnin snertir 2.300 Eflingarfélaga og losna samningar þeirra 1. maí.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu.

Þar segir að samningarnefnd Eflingarfélaganna hafi tilkynnt Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) um uppsögn kjarasamnings. Uppsögnin er gerð með vísun í forsenduákvæði í kjarasamningi Eflingar og SFV.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, ásamt samninganefnd Eflingarfélaga tilkynnti fulltrúum SFV þetta í dag á fundi í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Samningi er sagt upp frá og með 1. maí næstkomandi, en viðræður um endurnýjun geta hafist án tafar að því er segir í tilkynningunni.

Ekki tókst að vinna tímasetta áætlun

Þar segir enn fremur að umrætt forsenduákvæði gerði ráð fyrir því að fram kæmi tímasett áætlun um hvernig ná skuli gildandi viðmiðum um lágmarksmenn á hjúkrunarheimilum. Starfshópi skipuðum af heilbrigðisráðherra sem í sátu fulltrúar Eflingar, SFV, Sjúkratrygginga Íslands, Heilbrigðisráðuneytisins og fleiri tókst ekki vinna slíka tímasetta áætlun heldur skilaði aðeins af sér minnisblaði þann 18. febrúar síðastliðinn.

Segir Efling að úrbætur í mönnun hafi verið meginkrafa Eflingar í viðræðum við hjúkrunarheimilin, fremur en launakröfur, og vél félagið ekki frá þeirri launastefnu sem mörkuð var í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði í apríl 2024.

2.300 Eflingarfélagið með lausa samninga 1. maí

Það hafi markað tímamót að takast skyldi að fjalla beint um mönnun, með umræddu forsenduákvæði, í kjarasamningunum sem undirritaðir voru við SFV þann 2. október 2024. Ljóst er hins vegar að forsenduákvæðið hefur ekki verið uppfyllt.

„Þetta merkir að í maí næstkomandi verða 2.300 Eflingarfélagar, mestmegnis konur í sögulega vanmetnum kvennastörfum, með lausa kjarasamninga,“ segir í tilkynningunni.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar lýsir vonbrigðum með stöðu mála í tilkynningunni.

„Mér og samninganefndinni þykir leitt að þessi staða sé komin upp. Við bundum miklar vonir við að hægt yrði að bæta úr þeirri grafalvarlegu stöðu sem ríkir á hjúkrunarheimilunum vegna undirmönnunar. Stöðu sem gerir að verkum að Eflingarfélagar axla gríðarmikla ábyrgð og ganga í reynd í störf sem faglærðir starfsmenn ættu að vinna. Hér er við stör fjölmennur hópur af algjörlega ómissandi starfsfólki. Nú hefjum við kjaraviðræður að nýju og ekki eftir neinu að bíða,“ er haft eftir Sólveigu í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert