Hver mínúta umfram 5 mínútur mun kosta 500 krónur

Frá Leifsstöð.
Frá Leifsstöð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Isavia hyggst breyta fyrirkomulagi við svokallaða „rennu“ við brottfararinngang flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli. Verða nú bílstjórar rukkaðir fyrir hverja mínútu sem þeir dvelja þar umfram fimm mínútur.

Hver mínúta eftir það mun kosta 500 krónur.

Um er að ræða akreinina sem er ætluð þeim sem þurfa að aka upp að flugstöðinni og stöðva í stutta stund til þess m.a. að hleypa út farþegum eða losa farangur.

Nokkuð um að bílum sé lagt í lengri tíma

Í tilkynningu frá Isavia er tekið fram að nokkuð hafi verið um að bílstjórar leggi bílum í rennunni í lengri tíma, sem stífli flæði umferðar og geti heft aðgengi farþega og viðbragðsaðila.

„Með breytingunni er ætlunin að tryggja öllum sem eru t.d. að skutla farþegum á flugvöllinn skjótt og öruggt aðgengi. Það verður gert með því að taka gjald af þeim sem dvelja lengur en 5 mínútur í henni,“ segir í tilkynningunni.

Til að koma til móts við farþega verði gjaldfrjálsi tíminn á P2-skammtímabílastæðunum, komumegin við flugstöðina, lengdur úr 15 mínútum í 30.

Um 20% bíla lengur en fimm mínútur

„Á milli 1.500 og 1.700 bílum er ekið í gegnum rennuna á dag og er umferðin mest á álagstíma á flugvellinum. Lítið má því út af bregða til að þar verði tafir og biðraðir myndist ef bílar eru stöðvaðir of lengi eða er jafnvel lagt í rennunni,“ segir í tilkynningunni.

„Athugun á notkun rennunnar yfir rúmlega mánaðar tímabil sýnir að dvalartími um 8% bíla er á bilinu 16-20 mínútur. Það hefur heft flæði í gegnum hana og leitt til biðraða sem valda öðrum gestum flugvallarins óþægindum.

Til að sporna gegn þessu og stuðla að bættu flæði um rennuna verður tekið upp gjald á þau ökutæki sem eru lengur en fimm mínútur.“

Bent er á að langflestir ökumenn nýti rennuna eins og til sé ætlast og stöðvi þar bíla sína einungis í örskamma stund. Miðgildi dvalartíma sé um tvær og hálf mínúta og um 80% bíla séu 5 mínútur eða skemur í rennunni.

„Á grundvelli þessa var ákveðið að gefa 5 mínútur í rennunni og hefja gjaldtöku að því loknu til að tryggja gott flæði og aðgengi fyrir sem flesta gesti flugvallarins. Áfram verður frítt fyrir þau sem nýta rennuna eins og gert er ráð fyrir og ætlast er til,“ segir í tilkynningunni.

Gjaldtaka verður samkvæmt gjaldskrá og tekur fyrirkomulagið gildi 4. mars.

Benda á P1 og P2

Loks segir að ökumenn sem þurfi að dvelja lengur en gert sé ráð fyrir í rennunni geti nýtt sér skammtímastæði við flugstöðina, það er P1 sem er brottfararmegin og P2 sem er komumegin.

„Hingað til hefur ekki hefur verið tekið gjald fyrir að leggja á P1 og P2 fyrstu 15 mínúturnar. Til að mæta þörfum þeirra sem vilja eða þurfa að stöðva lengur en 5 mínútur, til dæmis þau sem eru að fylgja eða taka á móti vinum og vandamönnum, verður frítími á P2 lengdur í 30 mínútur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert