María Heimisdóttir skipuð landlæknir

María Heimisdóttir hefur verið skipuð landlæknir.
María Heimisdóttir hefur verið skipuð landlæknir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Jóhann Páll Jóhannsson, settur heilbrigðisráðherra, hefur skipað Maríu Heimisdóttur í embætti landlæknis til næstu fimm ára.

Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að María hafi verið metin hæfust af þeim sem um stöðuna sóttu.

María lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1990, MBA-námi frá University of Connecticut 1997 og doktorsprófi í lýðheilsu frá University of Massachusetts árið 2002. María starfaði hjá Íslenskri erfðagreiningu frá árinu 1999 til 2003 og á Landspítala árin 2003 til 2018, meðal annars sem yfirlæknir hagdeildar og framkvæmdastjóri fjármála, auk þess sem hún leiddi þróun rafrænnar sjúkraskrár um árabil.

María var forstjóri Sjúkratrygginga Íslands frá 2018 til 2022 og árin 2023-2024 starfaði hún sem ráðgjafi stýrihóps Nýs Landspítala ohf. fyrir heilbrigðisráðuneytið. Frá því í ágúst á liðnu ári hefur hún verið yfirlæknir á upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún hefur enn fremur sinnt kennslu og rannsóknum samhliða öðrum störfum og er varamaður í háskólaráði HÍ.

Segir enn fremur í tilkynningunni að það sé mat hæfnisnefndar að víðtæk háskólamenntun Maríu á fleiri en einu sviði nýtist mjög vel í starfi, auk sérfræðimenntunar í læknisfræði en sérgrein hennar er lýðheilsufræði. Þá sé hún reynslumikill og farsæll stjórnandi með langvarandi reynslu á sviði rekstrar og fjármála. Í umsögn nefndarinnar segir m.a. að að María hafi afburða leiðtogahæfni, farsæla reynslu af stjórnun og rekstri.

María tekur við af Guðrúnu Aspelund sóttvarnalækni sem hefur verið settur landlæknir frá því að Alma Möller, sem nú er heilbrigðisráðherra, bauð sig fram til Alþingis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert