Blágrænt halastjörnubrot lýsti upp himininn yfir Spáni og Portúgal á laugardagskvöld samkvæmt Geimferðastofnun Evrópu (ESA).
Stofnunin deildi myndskeiði af stjörnudýrðinni og sögðu greiningarvinnu standa yfir á stærð og stefnu „loftsteinsins“ og hvort einhver brot hefðu fallið til jarðar.
☄️😍 ESA’s fireball camera in Cáceres, Spain, spotted this stunning meteor last night!
— ESA Operations (@esaoperations) May 19, 2024
Our Planetary Defence Office are currently analysing the size and trajectory of the object to assess the chance that any material made it to the surface.
Credit: ESA/PDO/AMS82 - AllSky7 pic.twitter.com/gSU4unncQW
Kom síðar í ljós að sjónarspilið stórfenglega hafi verið brot úr halastjörnu en ekki loftsteinn. Brotið hafi hrapað á um 45 kílómetra hraða á sekúndu og síðar brunnið upp yfir Atlantshafinu.