Árið er

Árið er

Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Magni fer í Rockstar Supernova, Hafdís Huld gerir það gott á Englandi, Pétur Ben sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu og Kaninn kveður. Ragnheiður Gröndal er með þér, Fabúla svífur um á beiku skýi, Ívar Bjarklind fer yfir hafið, Regína Ósk er í djúpum dal en Lára Rúnarsdóttir syngur Þögn. Hjaltalín vekur athygli eftir skapandi sumarstarf í Reykjavíkurborg, Siggi Pálma segir sögur, Ghostigital breytist í hljómsveit og Sykurmolarnir koma saman á ný, Sálin og Gospelkór Reykjavíkur rugla saman reytum sínum, Todmobile lokar sig inn í kastala og FM Belfast spilar á sínum fyrstu alvöru tónleikum. Sviðin jörð spilar og syngur lög til að skjóta sig við, Trabant er í útrásargír, Friðrik Ómar fer sóló, Jet Black Joe snýr aftur og Bogomil Font & Flís dansa calypso. Stebbi og Eyfi hlýja sér undir nokkrum notalegum ábreiðum og Máni Svavars stekkur inn á breska smáskífulistann með vinum sínum í Latabæ. Meðal viðmælenda í 32. þættinum, í seinni hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2006, eru Magni Ásgeirsson, Ívar Bjarklind, Högni Egilsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Freyr Eyjólfsson, Þorvaldur Gröndal, Ragnar Kjartansson, Sigtryggur Baldursson, Björk Guðmundsdóttir, Margrét Kristín Sigurðardóttir, Lára Rúnarsdóttir, Regína Ósk Óskarsdóttir, Pétur Þór Benediktsson, Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Eyþór Arnalds, Hafdís Huld Þrastardóttir, Þór Freysson, Ingólfur Þórarinsson, Árni Rúnar Hlöðversson, Árni Vilhjálmsson, Stefán Hilmarsson, Snorri Helgason, Birgir Ísleifur Gunnarsson, Benedikt Hermann Hermannsson, Karl Henry Hákonarson, Haukur Magnússon og Máni Svavarsson. Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson. Lagalisti: Á Móti Sól - Hvar sem ég fer Magni - Plush (Live - Rockstar Supernova) Magni - I alone (Live - Rockstar Supernova) Magni - Dolphins Cry (Live - Laugardalshöll) Ívar Bjarklind - Dreggjar Ívar Bjarklind - Yfir hafið Hjaltalín - Mamma kveikir kertaljós Hjaltalín - The Trees Don’t Like The Smoke Sálin hans Jóns míns & Gospelkór Reykjavíkur - Þú trúir því Sviðin jörð - Allt sem ég hef misst Sviðin jörð - Vorið sem ástin dó Friðrik Ómar og Páll Óskar - Þessar dyr Skakkamanage - None Smoker Trabant - ONE (Remix) Bogomil Font & Flís - Veðurfræðingar ljúga Bogomil Font & Flís - Eat Your Car Ghostdigital - Not Clean Sykurmolarnir - Ammæli Sykurmolarnir - Regína Dimma - Mama (Sykurmolaábreiðukeppni Rásar 2) Fabúla - Pink Sky Fabúla - Skateboard Siggi Pálma - Blue Eyes Lára Rúnars - Þúsund fjöll Lára Rúnars & Damien Rice - Why Regína Ósk - Ljósin komu Jet Black Joe - Full Circle Pétur Ben - Wine For My Weakness Pétur Ben - Pack Your Bags Pétur Ben - Something Radical Pétur Ben - White Tiger Todmobile - Ljósið ert þú Todmobile - Lestin Hafdís Huld - Ski Jumper Hafdís Huld - Tomoko Hafdís Huld - Diamonds On My Belly Snorri Snorrason - Allt sem ég á (Idol Stjörnuleit) Ingó Idol - Sway Ingó - Týndur Rúnar Júlíusson - Söngur villiandarinnar Supergrass - Pumping on Your Stereo (Live - Reykjavík Trópík) Pink Floyd - Time Kaiser Chiefs - Everyday I Love You Less & Less (Live - Airwaves) FM Belfast - Pump FM Belfast - Synthia Ragnheiður Gröndal - Með þér Ragnheiður Gröndal - Gef að stjörnunar skíni Selma og Hansa - Taktu mig með Stefán Hlimars & Eyfi - Góða ferð Stefán Hilmars & Eyfi - Við hafið svo blátt Sprengjuhöllin - Can’t dance Sprengjuhöllin - Tímarnir okkar Benni Hemm Hemm - Ég á bát Kalli - It’s over Reykjavík - Advanced Dungeons & Dragons Reykjavík - All Those Beautiful Boys Æla - Pirringur Latibær - Bing Bang Halli Reynis - Leiðin er löng Halli Reynis - Sveitin mín heitir Breiðholt Halli Reynis - Draumalandið mitt Björgvin Halldórsson og Sinfóníuhljómsveit Íslands - Skýið

Árið er 2006 - seinni hlutiHlustað

01. feb 2024