Asthmakastið

Asthmakastið

Systurnar fara yfir hluti sem þær skilja ekki. Listinn er því miður ótæmandi þar sem þær virðast deila einni heilasellu á milli sín en þar á meðal eru hlutir eins og: neðansjávargöng (án djóks wtf?), dauðinn (ekki í lagi, hættum að deyja), rafmagn (svartigaldur), símar og útvarp (hvert fer hljóðbylgjan og af hverju blandast hún ekki saman við aðrar?!), WiFi (AF HVERJU ER SAMBANDSLEYSI STUNDUM?), faxvélar (án gríns hvað fokkíng meinaru?)

#5 Dauðinn er fáránlegt concept og hann er CANCELLEDHlustað

16. júl 2024