Í þættinum fara systurnar yfir hræðilegar, fyndnar og vandræðalegar vinnusögur.
Má þar nefna þegar Inga vann á vinsælum veitingastað og eigendurnir neyddu starfsfólkið til að framreiða skólpmarineraðan mat eða þegar yfirmaðurinn hennar greiddi henni fyrir að þegja yfir kynferðislegu áreiti (spoiler alert; hún sagði öllum frá því).
Eða þá þegar Sunneva varð óvart lögregluþjónn þegar hún vann í Bónus á Laugaveginum eða smánaði blindann mann og kallaði hann moldvörpu.
All in all, allt hræðilegt en ógeðslega fyndið.
#8 Yfirmaðurinn minn borgaði mér til að þegja yfir kynferðislegu áreiti