Bara bækur

Bara bækur

Bókin er dauð eða á grafarbakkanum. Þetta hefur heyrst á torgum í nokkurn tíma. Það er einhver þörf fyrir að lýsa yfir dauða hlutanna, kannski einmitt með því haldast þeir á lífi. Fyrir fáeinum vikum var fjallað hér um að bókin væri sprelllifandi, að með tilkomu samfélagsmiðla og áhrifavalda hefði áhugi ungs fólks sérstaklega á lestri og bókmenntum snaraukist og bóksala væri í hæstu hæðum. Er það tilfellið og á það sama við hér heima? Eru samfélagsmiðlar bandamenn bókmenntaumræðu eða bara armur markaðsafla? Hversu djúpt ristir þessi áhugi? Það er komið að öðrum kafla í rannsókn á bókaóðri Z-kynslóð - við rýnum í kilina, þessa sem eru að trenda á samfélagsmiðlum, og veltum fyrir okkur stöðunni hér á Íslandi. Mér líður ágætlega en gæti liðið betur er nafnið á smásagnaúrvali eftir bandaríska rithöfundinn Lydia Davis sem kom út í íslenskri þýðingu nú fyrir jólin. Það er í fyrsta sinn sem Davis er þýdd á íslensku en hún er einhver mest spennandi og frumlegasti samtímahöfundur Bandaríkjanna. Hún skrifar hnyttnar ör- og smásögur en þrátt fyrir smæð eru viðfangsefnin stór og margar þeirra átakanlegar og heimspekilegar. Við förum í heimsókn til Berglindar Ernu Tryggvadóttur sem valdi og þýddi sögur þessa merkilega höfundar. Viðmælendur: Berglind Erna Tryggvadóttir, Heiðar Ingi Svansson, Jón Heiðar Gunnarsson og Embla Rún Hall. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Lesóð Z-kynslóð II og Lydia DavisHlustað

09. mar 2024