Ein Pæling

Ein Pæling

Þórarinn ræðir við Hörð Ægisson, ritstjóra Innherja á Vísi, um áhrif tollastríðs Trumps á Ísland. Lögð er sérstök áhersla á hvað Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og ríkisstjórnin þurfi að gera til þess að takast á við þetta, hvort að vextir verða lækkaðir, hvort að sóknartækifæri geti leynst í þessum aðstæðum og hvort Íslendingar muni nú einbeita sér að verðmætasköpun í annarri mynd en við höfum gert hingað til. - Verða stýrivextir lækkaðir útaf tollastríðinu? - Mun ríkinu takast að selja Íslandsbanka? - Hvað þarf ríkisstjórnin að gera? - Eru veiðigjöld fýsileg við núverandi aðstæður? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á : www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270

#408 Hörður Ægisson - Hver verða áhrif tollastríðs Trumps á Ísland?Hlustað

07. apr 2025