Flugvarpið

Flugvarpið

Rætt er við Leif Guðmundsson tæknistjóra Icelandair en hann hefur starfað í tækni- og viðhaldsmálum í fluginu allt frá því hann lauk námi í flugvirkjun árið 1998. Flugflotinn sem tæknisvið Icelandair sinnir í dag telur yfir 50 flugvélar út um allan heim og verkefnin eru í öllum heimsálfum. Leifur segir hér m.a. frá því hvernig flókið viðhald á flugvélum er skipulagt, hvað fer í gang þegar flugvél bilar, hvernig viðhaldi nýrra véla versus gamalla er háttað og ýmislegt fleira áhugavert. Tæknisvið Icelandair sem Leifur stýrir telur yfir 400 manns og þar af eru hátt í 300 flugvirkjar í margs konar fjölbreyttum störfum.

#103 – Um flókið viðhald flugvéla – tæknisvið Iceair með verkefni í öllum heimsálfum – Leifur GuðmundssonHlustað

14. feb 2025