Flugvarpið

Flugvarpið

Í þættinum er rætt við Tómas Ingason framkvæmdastjóra tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Nú fer í hönd umfangsmesta áætlun í sögu félagsins og markmiðið er að draga úr árstíðarsveiflunni og auka flugið utan háannatíma. Tómas fer hér m.a. yfir þá breytingu sem er að verða á félaginu með nýjum og langdrægari flugflota, samkeppnina við bæði stóru flugfélögin yfir Atlantshafið og ekki síður við lággjaldaflugfélögin sem fljúga til og frá landinu. Tómas segir að stöðugt sé unnið að þróun á áætlun félagsins bæði til skemmri og ekki síður lengri tíma. Þar er horft til þess hvernig best megi tengja fjarlægari áfangastaði inn í leiðakerfið og efla Keflavíkurflugvöll sem öfluga tengimiðstöð í samvinnu við ISAVIA.

#112 – Langtímamarkmið í uppbygginu flugáætlunar Icelandair – flotabreytingar, árstíðarsveiflan og þróun KEF sem tengimiðstöðvar – Tómas IngasonHlustað

02. maí 2025