Handboltinn okkar

Handboltinn okkar

Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp átjánda þátt vetrarins. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson og Gestur Guðrúnarsson Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 9.umferð Olísdeildar karla auk þess að velja Klakaleikmenn leikjanna. Ásbjörn Friðriksson (FH), Björgvin Páll Gústavsson (Val), Einar Baldvin Baldvinsson (Gróttu), Arnór Viðarsson (Stjörnunni), Atli Báruson (Haukum) og Hrannar Bragi Eyjólfsson (Stjörnunni). Í lok þáttar fóru þeir aðeins yfir tvö málefni, annars vegar staða handboltans á Akureyri en Árni Rúnar Jóhannesson formaður handknattleiksdeildar Þórs Akureyri skrifaði grein um það mótlæti sem félagið finnur fyrir hjá bæjarstjórn Akureyrar.  Hins vegar fóru þeir aðeins yfir greinarnar sem Arnar skrifaði á handbolti.is þar sem að hann viðrar þær hugmyndir um að fækka liðum í úrvalsdeild.

Allt um 9.umferðina í Olísdeild karla - Staða handboltans á Akureyri rædd -Greinaskrif AddaHlustað

24. nóv 2021