Hlaupalíf Hlaðvarp

Hlaupalíf Hlaðvarp

Við fengum til okkar margfaldan Íslandsmethafa í götuhlaupum, Sigurbjörgu Eðvarðsdóttur kennara og leiðsögukonu en hún á hvorki meira né minna en 11 Íslandsmet í hinum ýmsum aldursflokkum - og er enn að slá slík met, m.a nýlega í 5 km Víðavangshlaupi ÍR. Þá hljóp hún Lissabon maraþonið sl. haust á 3.35 og var fyrst í sínum aldursflokki. Langfyrst. 66 ára gömul. Og sló þar með Íslandsmetið í sínum aldursflokki (65-69 ára). Geri aðrir betur.Þvílík fyrirmynd sem hún Sigurbjörg er fyrir okkur hlaupara og í raun alla þá sem aðhyllast hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl.

#54 Sigurbjörg Eðvarðsdóttir - margfaldur ÍslandsmethafiHlustað

14. maí 2025