Hlaupalíf Hlaðvarp

Hlaupalíf Hlaðvarp

Sonja Sif Jóhannsdóttir íþróttagarpur kom til okkar í settið þar sem við fórum yfir hennar fjölbreyttu aðkomu inn í íþróttaheiminn og ekki síst íþróttabakgrunn. Sonja Sif tók þátt í London maraþoninu sl. helgi, æfir fyrir heilan Iron Man í ágúst, hefur langa og mikla reynslu af þjálfun, er með master í íþrótta og heilsufræðum, kennir við MH og Háskóla Íslands - og hefur fyrst og fremst mikla ástríðu fyrir heilbrigðum lífsstíl, rétt eins og við í Hlaupalíf Hlaðvarp.Við fórum einnig yfir nokkur praktísk atriði fyrir Bakgarðshlaupið nk og kynntum til leiks nýjan lið; sturlaðar og skemmtilegar hlaupastaðreyndir!

#53 Sonja Sif og hlaupalífiðHlustað

01. maí 2025