Pálmi Hjalta mætti til okkar í Hljóðverk og fór yfir tónlistarferil sinn. Pálmi hefur komið víða við í gegnum árin, þrátt fyrir að hann sé þessa dagana í fyrsta skipti að senda frá sér tónlist undir eigin nafni. Pálmi sagði okkur frá tímanum þegar hann bjó í Bretlandi og stundaði þar nám í bassaleik, tónleikaferðum sínum erlendis og spjallaði við okkur um nýja sóló efnið sitt.
Umsjón þáttarins: Einar Vilberg, Ómar Al Lahham og Benedikt Sigurðsson.
Upptökur og hljóðblöndun: Einar Vilberg í Hljóðverk.