Í þessum þætti bjóðum við velkomna Rósu Mundu Sævarsdóttur. Rósa Munda hóf feril sinn sem forritari fyrir rúmum 20 árum og hefur starfað bæði hér á landi og í Danmörku. Hún vann hjá Meniga frá árinu 2013 en hóf störf hjá Lucinity árið 2020.
Í þættinum ræða Hildur og Rósa Munda m.a. um
Hvernig það þróaðist að Rósa Munda varð bakendaforritari
Starfsárin í Danmörku og muninn á fyrirtækjum þar og hér á landi
Mistök, hvernig hægt er að nálgast þau og vaxa
Vöruþróunarteymi og hvernig þau geta unnið og verið sjálfstæð
Hver ástæðan gæti verið fyrir háu brottfalli kvenna úr starfi forritara
Hvernig hægt er að vinna sig „upp“ án þess að hafa mannaforráð
Hvernig starf forritara fer með þriðju vaktinni
Í lok þáttarins eru tvær bækur nefndar: Inspired og Empowered eftir Marty Cagan
Þátturinn er í boði Geko - Specialists in Innovation Talent
4. Rósa Munda Sævarsdóttir, bakendaforritari hjá Lucinity