Í þessum fyrsta þætti haustsins bjóðum við velkomna Súsönnu Þorvaldsdóttur. Súsanna lauk meistaragráðu í verkfræði frá háskólanum í Álaborg árið 2000 og var þar ein af 5 konum af 100 nemendum í sínum árgangi.
Hún starfaði í Danmörku í kjölfarið m.a. hjá Lego og hjá fjarskiptafyrirtækjunum Maxon Telecom og FL-telecom. Eftir að hafa flutt aftur til Íslands árið 2005 starfaði Súsanna hjá TM Software, nú Origo, í alls 12 ár en frá árinu 2017 hefur hún starfað sem bakendaforritari hjá Icelandair.
Í þættinum ræða Hildur og Súsanna meðal annars:
Hvernig starf í tölvudeild Landsbankans vakti áhuga á tölvunarfræði
Hvað varð til þess að hún hélt utan til náms um þrítugt til að læra tölvunarfræði en endaði í verkfræði
Ævintýralegar notendaprófanir fyrir kóreskt fjarskiptafyrirtæki
Hvernig það þróaðist að bakendaforritun varð að hennar sérhæfingu
Kosti þess að vinna í vöruteymi og hafa skýra stefnu
Mikilvægi þess að fólk velji sér að vinna við það sem það brennur fyrir og hefur gaman af
Hvað prjónaskapur er gefandi áhugamál ásamt því að stunda hlaup
================================================
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu.
Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
====================================================
Um hlaðvarpið
Stjórnandi þáttarins er Hildur Óskarsdóttir
Sýn er styrktaraðili þáttarins
20. Súsanna Þorvaldsdóttir, verkfræðingur og bakendaforritari hjá Icelandair