Landspítali hlaðvarp

Landspítali hlaðvarp

Legvörpur hefja árið á nýrri syrpu í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem talað verður við reynslubolta landsins  Fyrst á svið er brosmilda hestakonan og Suðurnesjadrottningin Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum á Suðurnesjum. Ferill Guðrúnar á Ljósmæðravakt HSS spannar 47 ár og fer hún yfir hápunkta og skemmtilegar sögur í viðtali dagsins. Ljósmæðraáhuginn, námsárin, samblandan við einkalífið, uppáhalds ljósubarnið, sorgir og sigrar. Það er áhugavert að heyra frá breytingum og þróun á starfsháttum og menningu í kringum fæðingar á þessum tíma, og ekki síður magnað að heyra frá því sem ekki breytist í aldanna rás þegar ljósmæðralistin er annars vegar.

Legvarp // Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðirHlustað

17. jan 2024