Lestin

Lestin

Um helgina voru 25 ár frá því að platan 69 Love Songs með hljómsveitinni The Magnetic Fields kom út, 7. September 1999. Platan öðlaðist költstöðu á því augnabliki sem hún kom út, brjálæðislegt verkefni sem gengur fullkomlega upp. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir er að fara að frumsýna nýtt leikrit á fimmtudaginn í Kassanum. Taktu flugið, beibí er byggt á lífshlaupi og lífsreynslu höfundarins. Lóa ræðir við Kolbrúnu um verkið. Ýmis ummerki eða spor eftir heimspekilega hugsun er að finna í miðaldarbókmenntum Íslendinga, hvort heldur í kvæðum, sögum eða lögum. Við ræðum við Gunnar Harðarson, heimspeking, sem hefur verið að leita að fingraförum spekinnar í íslenskum miðaldatextum.

69 ástarlög, íslensk heimspeki á miðöldum, Taktu flugið beibíHlustað

10. sep 2024