Lestin

Lestin

Björgúlfur Jes Einarsson úr hljómsveitinni Spacestation átti viðburðarríkan marsmánuð. Hljómsveitin vann lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum, gáfu út plötuna RVK Syndrome og spiluðu á tónleikum erlendis. Og næsta skref hjá Björgúlfi eða Bjögga, er að gefa út fyrstu smáskífu nýs sólóverkefnis sem ber heitið Straff. Við frumflytjum svo lag sem kemur út á föstudaginn. Hver er Addison Rae? Og hvað er hún að gera í Iceland-versluninni í Vesturbergi í Breiðholti? Eitt sinn TikTok-stjarna en nú að vinna með Arca, A.G. Cook og Charli xcx, kemst hún upp með að skipta um starfsvettvang og fagurfræði og vinahóp?

Addison Rae í Iceland, Bjöggi fer í StraffHlustað

23. apr 2025