Linsan - Konur í kvikmyndagerð

Linsan - Konur í kvikmyndagerð

Kvikmyndagerðarkonan Guðný Halldórsdóttir er einn afkastamesti leikstjórinn í íslenskri kvikmyndasögu. Með leiftrandi og beittum húmor að vopni hefur henni tekist að skapa ógleymanlegar persónur sem lifa í manna minnum. Til mynda hennar má nefna Stellu í orlofi, Karlakórinn Hekla, Veðramót og Ungfrúin góða og húsið. Árið 2018 var hún sæmd heiðursverðlaunum Eddunnar fyrir einstakt framlag sitt til kvikmyndagerðar. Rætt er við Guðrúnu Elsu Bragadóttur kvikmyndafræðing og Kristínu Svövu Tómasdóttur, rithöfund og sagnfræðing, um feril Guðnýjar og verk hennar. Einnig er rifjað upp viðtal sem Vera Sölvadóttir tók við kvikmyndagerðarkonuna árið 2018 í þættinum Í húsi leikstjórans.

Guðrún Elsa Bragadóttir og Kristín Svava Tómasdóttir um DunuHlustað

30. ágú 2024