Linsan - Konur í kvikmyndagerð

Linsan - Konur í kvikmyndagerð

Heimildamyndir geta verið öflugt pólitískt hreyfiafl en þær hafa einnig þann eiginleika að draga fram mennskuna sem býr erfiðum og flóknum aðstæðum að baki. Sýrlenska heimildarmyndin For Sama, eða Fyrir sömu, eftir leikstjórann Waad Al-Kateab fjallar um stríðið í borginni Aleppo þar sem hún bjó í fimm ár. Pálmi Freyr Hauksson, leikstjóri og handritshöfundur, ræðir myndina sem hlaut bæði BAFTA-verðlaunin og tilnefningu til Óskarsverðlaunanna. Hrafnhildur Gunnarsdóttir heimildarmyndagerðarkona segir frá hvers vegna hún fann sig knúna til að feta braut heimildarmyndagerðar. Hún segir nefnilega það að festa sögu á mynd ekki vera starf heldur lífsstíl.

For Sama og Hrafnhildur Gunnarsdóttir heimildarmyndagerðarkonaHlustað

23. ágú 2024