Málið er

Málið er

Í þættinum í dag heyrum við sögu konu sem var vændiskona í Kaupmannahöfn. Eva Dís Þórðardóttir á að baki átakanlegar lífsreynslur sem hafa mótað hana. Í mörg ár vissi enginn af því að hún hefði stundað vændi og hún óttaðist ekkert frekar en að það kæmist upp. Eftir að hún sagði frá því opinberlega hefur hún upplifað algjört frelsi, nú getur enginn notað leyndarmálið gegn henni. Hún segir vændi vera ofbeldi ekki starfsgrein og eftir mikla sjálfsvinnu hefur hún nýtt sína reynslu öðrum til hjálpar. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir Viðmælandi: Eva Dís Þórðardóttir

Saga fyrrum vændiskonuHlustað

07. des 2018