Málið er

Málið er

Í Málið er í dag kynnir Viktoría Hermannsdóttir sér heim gámagramsara á Íslandi. Gámagrams er það þegar fólk nær sér í mat í matvörugáma verslana. Ólíkt því sem margir halda þá eru flestir sem stunda gámagrams ekki að gera það vegna fátæktar heldur af hugsjón. Við förum á rúntinn með Rakel Garðarsdóttur sem hefur lengi barist gegn matarsóun og skoðum gáma á höfuðborgarsvæðinu og hittum nokkra gámagramsara. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir Viðmælendur: Rakel Garðarsdóttir, Hallur Heiðarsson, Gréta, Adam og Kasja.

Gámagrams á ÍslandiHlustað

26. okt 2018