Þáttur 40 er mættur en hann er sá síðasti áður en við tökum okkur smá sumarfrí.
Þátturinn er í boði Viking Brugghús og við smökkuðum á Bróðir (Milkshake IPA) og Sumaröli (Hveitibjór með jarðaberja vibes). Einstaklega góðir báðir tveir, þeir fá hæstu meðmæli frá okkur bjórsystrum.
En annars vorum við báðar í Bandaríkjunum með nokkuð keimlík mál. Stella tók fyrir mál hans Kevin Davis á meðan Lára fjallaði um morðið á Iönu Kasian.
Alveg hrottalegur viðbjóður sem er kannski viðeigandi svona korter í frí.
Takk fyrir að hlusta kæru vinir, skál fyrir ykkur!
facebook.com/mordafordi
instagram.com/mordafordi