Þáttur númer tíu og skemmtunin er uppá 10, allavega skemmtum við okkur vel.
Við hófum jólabjórsmakkið í þessum þætti með einum laufléttum og góðum frá Færeyjum, ekki Finnlandi. Færeyjum. Á meðan við dreyptum á þessum dýrindis mjöð skutlaðist Lára yfir til Taiwan þar sem miður skemmtilegir atburðir áttu sér stað. Stella hélt skutlinu ótrauð áfram og endaði í Bandaríkjunum að þessu sinni.
Þvílík og önnur eins gleði alltaf hreint. Takk fyrir að hlusta!
We appreciate it, eins og kaninn segir.
facebook.com/mordafordi
instagram.com/mordafordi