Podcast með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Margrét Pála Ólafsdóttir er sannkölluð kjarnakona. Hún hefur um árabil rutt veginn fyrir nýjar leiðir í menntun barna. Þúsundir ánægðra foreldra hafa nú sent börn sín í skóla Hjallastefnunnar sem Margrét stofnaði. Margrét var ein fyrsta opinbera lesbían á Íslandi og lenti í hremmingum vegna þess. Hér ræða Sölvi og Margrét um það hvernig öll hennar tækifæri voru tekin af henni á einum degi vegna fordóma á tímum sem voru allt aðrir en í dag. Þau fara jafnframt yfir mikilvægi þess að hrista upp í menntakerfinu, hlusta á börn og þora að fara gegn straumnum. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/

Margrét Pála með Sölva TryggvaHlustað

20. jún 2024