Hvernig er tölustafurinn 7 á litinn eða bókstafurinn B?Er þriðjudagur með sama vibe og október? Er tíminn með form og lögun og vikudagar með ákveðna liti?Upplifir þú sterk viðbrögð við smatt hljóðum eða andardrætti annarra? Í þessum þætti er fjallað um áhugavert fyrirbæri sem nefnist samskynjun. Reynsla fólks af þessu fyrirbæri fá að heyrast og farið verður í fræðilegar pælingar bak við þetta sérkennilega fyrirbæri. Einnig verður rætt um annað tengt fyrirbæri sem nefnist hljóðhatur eða Misophonia.
Samskynjun og hljóðhatur: Gulir tónar og grænar sjöur