Samstöðin

Samstöðin

Fimmtudagurinn 19. september Kvenfrumkvöðlar, orkuokur, foreldrar og börn, félagslegir töfrar og lífsleikni Verðlaunakvenfrumkvöðlar setjast með Oddnýju Eir Ævarsdóttur og ræða sín afrek og stöðu kvenna: Heiðdís Einarsdóttir, Elinóra Inga Sigurðardóttir, Hraundís Guðmundsdóttir og Björg Árnadóttir. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna ræðir um hækkun á orkuverði, rukkanir fyrir bílastæði, vöruskerðingu og önnur neytendamál. Ársæll Arnarsson prófessor í sálfræði ræðir uppeldi og samskipti foreldra við börn og Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði um hvað beri að gera til að endurvefa félagslegt net samfélagsins. Í lokin ræðir Róbert Jack heimspekingur um vanda skólakerfisins, um sjálfsstjórn, lífsleikni og tjáningu tilfinninga.

Rauða borðið 19. sept - Kvenfrumkvöðlar, orkuokur, foreldrar og börn, félagslegir töfrar og lífsleikniHlustað

19. sep 2024