Komið þið sæl elsku bestu 🙂ÞIÐ ERUÐ AÐ FARA AÐ HLUSTA Á ÞÁTT NÚMER 54 AF SÖNNUM ÍSLENSKUM DRAUGASÖGUM! 🇮🇸Mikið yrðum við nú ánægð að fá sögu senda frá ÞÉR hlustandi góður! Endilega, ef þú lumar á einni sendu okkur hana þá við fyrsta tækifæri á sannar@draugasogur.com og við tökum hana fyrir í komandi þáttum.Hefur þú kannski sent okkur sögu og við erum ekki búin að taka hana fyrir? Þá gæti verið að það leynist póstur í inboxinu þínu, frá okkur þar sem við biðjum þig um skriflegt samþykki fyrir að fá að segja sögurnar þínar í podcastinu okkar. Þetta þarf allt saman að vera löglegt sjáið þið til 😉 Svo þið sem hafið sent inn sögur athugið hvort þið hafið ekki fengið póst frá okkur og endilega gefið okkur GO þar!EN að því sögðu, þá ætlum við í dag að segja ykkur fjórar skuggalegar draugasögur sem koma frá fjórum einstaklingum......Svo komið ykkur nú fyrir, slökkvið ljósin (já ekki svindla slökkvið ljósin!) og hlustið vel....👉🏼 KOMDU Í ÁSKRIFT AF SÖNNUM ÍSLENSKUM DRAUGASÖGUM - HÉROkkar frábæru samstarfsfélagar okkar eru:Happy Hydrate HELL ICE COFFEEGhostbox.is Leanbody SAGA 1: Konan í bústaðnum(sendandi: Anna),,Um nóttina vaknar maðurinn minn við bank á hurðina. Bústaðurinn er langt frá vegi, og engar mannaferðir þarna nálægt. Hann gerir fyrst ekkert en aftur er bankað svo hann stendur upp..."SAGA 2: Strákurinn í Kirkjugarðinum(sendandi: nafnleynd),,Ég starfaði í nokkur ár sem trukkabílstóri og keyrði þá á milli Reykjavíkur og Egilsstaða. Þessi keyrsla fór alltaf fram á næturnar og oftast var ég að fara Skeiðarársand á milli klukkan 9 og 10 á kvöldin þar sem ég tók skyldu stopp í Freysnesi og fékk mér að borða. En stundum þá var ég seinna á ferðinni. Ég lenti nokkrum sinnum í því..."SAGA 3: Hliðið(sendandi: nafnleynd),,Ég og strákarnir mínir fórum í fjölskyldugrill á sveitabæ sem ég er frá. Þegar ég fór í gegnum hliðið þá fór mér hinsvegar að líða mjög illa í hálsinum og það fór bara versnandi þegar leið á..."SAGA 4: Úlfljótsvatn árið 1998(sendandi: nafnleynd),,Ég man mér fannst orkan dáldið sérstök á þessum stað, en tengdi það smá við kannski óöryggi að vera að heiman án foreldra. En í seinna skiptið sem ég fór gisti ég ekki í aðalhúsinu heldur var okkur vinkonunum úthlutaður útiskáli..."Þá er 54 þætti af Sönnum Íslenskum Draugasögum lokið!Við viljum þakka höfundum dagsins kærlega fyrir að leyfa okkur að segja sögurnar þeirra og fyrir að leyfa ykkur hinum að hlusta. Við viljum hvetja alla sem að sitja á draugalegum atvikum að senda okkur frásagnir á sannar@draugasogur.com.En eins og þið heyrðuð í þættinum þá kom þarna spurning í seinustu sögunni sem hljómaði svona: Gerist það oft að kirkjuklukkur hringi svona á nóttunni? Hvað segið þið hlustendur, einhver hér sem býr nálægt kirkju og hefur lent í því sama?Annars viljum við bara þakka ykkur öllum kærlega fyrir að hlusta og fyrir að vera í þessu draugasamfélagi með...