Spursmál

Spursmál

Hvar liggja mörk friðhelgi einka­lífs­ins og hvar tek­ur rétt­ur al­menn­ings til upp­lýs­inga­gjaf­ar við? Eva Hauks­dótt­ir, lögmaður Páls Stein­gríms­son­ar ræðir það í Spurs­mál­um. Og margt fleira er á dag­skrá.Rósa Guðbjarts­dótt­ir, alþing­ismaður og fyrr­um bæj­ar­stjóri í Hafnar­f­irði ræðir frétt­ir vik­unn­ar ásamt Birni Brynj­úlfi Björns­syni, fram­kvæmda­stjóra Viðskiptaráðs. Rósa hafði aðkomu að gerð kjara­samn­inga við kenn­ara og í þætt­in­um verður hún spurð út í meinta aðkomu Ásthild­ar Lóu Þór­halls­dótt­ur, mennta­málaráðherra að gerð samn­ing­anna og eins fram­göngu Heiðu Bjarg­ar Hilm­is­dótt­ur, for­manns Sam­taka ís­lenskra sveit­ar­fé­laga.Sú síðast­nefnda ein­angraði sig frá allri stjórn sam­tak­anna þegar hún sagðist reiðubú­in fyr­ir hönd Reykja­vík­ur að ganga til samn­inga við kenn­ara, jafn­vel þótt öll önn­ur sveit­ar­fé­lög lands­ins væru ekki til í að bjóða upp í þann dans. Björn Brynj­ólf­ur kynnti fyrr í vik­unni ásamt sam­starfs­fólki sínu skýrslu um fjöl­miðlamarkaðinn og það hvernig Rík­is­út­varpið gín yfir öðrum fyr­ir­tækj­um á þeim markaði.Þá verður tali einnig vikið að nýj­um hagræðing­ar­til­lög­um sem rík­is­stjórn­in er kom­in með á sitt borð. Þar er stefnt að því að spara 70 millj­arða á næstu fimm árum. Það eru inn­an við 1% aðhaldsaðgerðir á hvert ár.Í þætt­in­um er einnig rætt við Álf­hildi Leifs­dótt­ur, sveit­ar­stjórn­ar­konu í Skagaf­irði og framá­konu í Vinstri­hreyf­ing­unni grænu fram­boði. Hún er afar ósátt við þær fyr­ir­ætlan­ir meiri­hlut­ans í sveit­ar­fé­lag­inu að selja tvö af tíu fé­lags­heim­il­um héraðsins. Hún ræðir þau mál og stöðu VG sem virðist rúst­ir ein­ar eft­ir það af­hroð sem flokk­ur­inn galt í síðustu alþing­is­kosn­ing­um.

#68. - Mega blaðamenn brjótast inn á heimili fólks?Hlustað

07. mar 2025