Spursmál

Spursmál

Á sama tíma og Don­ald Trump legg­ur tolla á ná­granna­ríki Banda­ríkj­anna, Kína og Evr­ópu­sam­bandið reyn­ir hann að toga Úkraínu­menn og Rússa að samn­inga­borðinu. Hann kall­ar eft­ir friði í Evr­ópu.Er Trump í rugl­inu?Tryggvi Hjalta­son nam hernaðar- og varn­ar­mála­fræði í Banda­ríkj­un­um og þá lauk hann einnig þriggja ára liðsfor­ingjaþjálf­un hjá Banda­ríkja­her. Hann hef­ur teiknað upp ólík­ar sviðsmynd­ir um það hvað Trump hygg­ist fyr­ir og hvaða ár­angri hann hef­ur í hyggju að ná þegar kem­ur að mál­efn­um Úkraínu, NATO en ekki síst bar­átt­unni um hernaðarlega yf­ir­burði á heims­sviðnu. Þar gera Kín­verj­ar sig sí­fellt lík­legri til þess að skáka Banda­ríkj­un­um.Dr. Ragn­ar Árna­son, pró­fess­or emer­it­us í hag­fræði við Há­skóla Íslands hef­ur að und­an­förnu fjallað ít­ar­lega um kosti og galla þess að Ísland gengi í Evr­ópu­sam­bandið. Hef­ur hann t.d. bent á að það sé tómt mál að tala um eina til­tekna hús­næðis­vexti á evru­svæðinu. Þar muni miklu milli ólíkra hag­kerfa.Hef­ur hann tek­ist nokkuð hart á við Dag B. Eggerts­son um þessi mál. Var þeim báðum boðið í þátt­inn, bæði í þess­ari viku og hinni fyrri og þáði Ragn­ar boðið. Í frétt­um vik­unn­ar er rætt við tvo alþing­is­menn sem bera sitt­hvorn heiðurstitil­inn. Jón­ína Björk Óskars­dótt­ir er elsti nú­ver­andi þingmaður­inn en hún sit­ur á þingi fyr­ir Flokk fólks­ins. Ingvar Þórodds­son er þingmaður Viðreisn­ar og er hann yngst­ur þing­manna sem nú sitja.

#69. - Er Trump með plan? Er heimsstyrjöld í aðsigi? Hlustað

14. mar 2025