Þú veist betur

Þú veist betur

Við borðum öll. Oftar en einu sinni á dag, ef við erum heppin. En hvernig ákveðum við hvað fer ofan í okkur? Er það smekkur? Vaninn? Hráefnisverð? Eða eitthvað sem amma sagði einu sinni? Í þessum þætti ætlum við að velta fyrir okkur næringarfræði, ekki bara sem lista yfir vítamín og steinefni, heldur sem fræðigrein sem hefur mótað samfélagið, matarmenningu og jafnvel pólitík. Ég fékk Bryndísi Evu Birgisdóttur til mín, næringarfræðing sem hefur skoðað þetta frá öllum hliðum. Og við ræðum allt frá skyr og slátri yfir í fæðubót og ofgnótt. Hvað vitum við í raun um það sem við borðum? Og hvernig lærum við að borða betur án þess að fara í vitleysu? Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Bryndís Eva Birgisdóttir

NæringarfræðiHlustað

15. jún 2025