Það voru miklir endurfundir er Birkir, Egill Geirsson og Eiður Steindórsson hittust í fyrsta sinn eftir tæp 20 ár í sundur. Birkir var radd og-vitlaus, vannærður, vansvefta og yfirgíraður, Eiður nýkominn af næturvakt og Egill með lítið eftir á tanknum fyrir eitthvað kjaftæði, eða hvað? Kiddi Crowley þurfti að hafa sig allan við að halda körfunni á karfanum.Egill (Munnriður, Changar, Dormah, Daddy Issues) og Eiður (Snafu, Future Future, Vera, Oath, Gamli, Daddy Issues) hafa margar fjörurnar sopið og þeirra staður í þungarokki Íslands er tryggður. Frábærir listamenn báðir tveir með sínar sérstæðu nálganir á formið; frjóir, óútreiknanlegir og eftirtektaverðir, hvor á sinn hátt.Það skýn fljótt í að hér mun karlaklúbbur af einhverju tagi gerjast og flæða yfir bakka sína hvar samtalið verður taum- og stefnulausara með hverri mínútunni. Það er ýmislegt mis gagn- og fróðlegt sem kemur úr dúrnum en einhver ykkar kunnið að hafa gagn og gaman af því þessi fundur gerði helling fyrir ofangreinda.Tónlist í þættinum:DADDY ISSUES - Ruslið út af Engan asa (2018)Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfÞessi þáttur hefði ekki verið mögulegur án Málmsmiðjunnar. Málsmiðjan er viðtalshlaðvarp með fókusinn á þungu Íslensku rokki af öllum gerðum. Frábær viðtöl og heimild. Besta leiðin til að kynnast persónum og leikendum Íslenska jaðarssin.Málmsmiðjan er á Spotify.
030. DADDY ISSUES með Eið Steindórs (Snafu, Future Future) og Agli Geirs (Dormah, Changer)