Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:Smári (týndur) og Birkir (vansvefta) söknuðu hvors annars. Því var skutlað í hraðsoðin þátt án alls undirbúnings hvar aðalviðfangsefnið var auðvitað SÁTAN 2025, hlýtt var á CHÖGMA demó, slagsmál í æsku, slysfarir vegna sjálfsfróunar og margt margt fleira. Hlustendur komu við sögu í þættinum og gammurinn gaus. Heiðrum minningu Nansý Guðmundsdóttur með því að vera í tjúlluðum fíling á Sátunni en gæta hvors annars í hvívetna. Minningin lifir!Frjáls Palestína! Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Stokkið í eldinn er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf