Umræðan

Umræðan

Peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku og kynnir fyrstu stýrivaxtaákvörðun ársins miðvikudaginn 8. febrúar. Verðbólgan hefur hjaðnað hægar en búist var við og samsetning hennar hefur breyst á síðustu mánuðum. Fasteignamarkaðurinn fer kólnandi og ýmis merki eru um kröftuga íbúðauppbyggingu. Kann að vera að verið sé að byggja of mikið? Í þættinum spá hagfræðingarnir Una Jónsdóttir, Ari Skúlason og Hildur Margrét Jóhannsdóttir fyrir um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, ræða verðbólguna, launahækkanir, fasteignamarkaðinn og fleira.

Hvert fara stýrivextir og hvað er að gerast á íbúðamarkaði?Hlustað

03. feb 2023