Anton Helgi Jónsson hugsar sig

Ég hugsa mig heitir ný ljóðabók Antons Helga Jónssonar, hans ellefta ljóðabók og kemur út á fimmtíu ára rithöfundarafmæli hans. Í bókinni lítur Anton um öxl og fram á veginn og bregður ljósi á það hve biðin skiptir miklu máli.